Næsti veiðitúr Laxá í Leir.

Sælir félagar.                                                                                                                                       Nú er skammt stórra högga á milli því næsti Víðförlatúr er núna á laugardaginn 12 sept n.k. Þeir félagar sem fara þann túr eru Jónas, Eyjó, Axel, Hilmar og 2 gestir. Talsverðar væntingar eru fyrir þessum túr og þá sérstaklega þar sem það hefur ringt svolítið í fjöll í Svínadalnum að undanförnu. Sumarið í sumar hefur verið talsvert lakara en undanfarin ár en ósinn er enn fullur af fiski sem bíður eftir vatni í ána til þess að ganga. Ef það gerist nú á næstu dögum erum við í fínum málum. Það væri óskandi að það kæmi smá rigning. Vonandi verður það samt ekki eins og í fyrra þegar áin var í algjöru yfirfalli og þó, við altjént veiddum ágætlega þrátt fyrir það.                                                   Eins og þið væntanlega vitið þá er veiðitímabilið farið að styttast í annann endann og er bara Langáin eftir svo vitað sé. En bíðum við er ekki kominn túr í Ytri-Rangá í október og fullt af félögum sem eru tilbúnir að fara þá. Þeir sem fara þangað og svo í Steinsmýrarvötnin í vor taka nú ekki langa hvíld yfir veturinn og er það vel. Að lokum vil ég hvetja ykkur til þess að setja inn greinar um veiðina í sumar og ekki skemma myndir.

Kveðja JM.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég ætla ekkert að vera neitt leiðinlegur strákar mínir en það hefur ekki rignt hérna þannig að það breytir nokkru, þannig að ég mæli með að ná annaðhvort í Indijána, sem getur kennt ykkur regndansa, eða ellegar MJÖG stóran tank bíl.

gangi ykkur vel.....

J (IP-tala skráð) 8.9.2009 kl. 15:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband