22.4.2008 | 15:08
Steinsmýrarvötn
Jæja þá er fyrsti staðfesti Víðförlatúrinn að baki og verður að segjast eins og er að enn einu sinni gerðumst við Víðförlir. Farið var á aldeilis ókunnar slóðir í Steinsmýrarvötn í Landbroti en enginn þeirra sem fóru í þennan veiðitúr höfðu veitt á þessu svæði.
Það kom skemmtilega á óvart hvað vel var búið að veiðimönnum á þessu svæði í alla staði. Flott veiðihús, rúmgott og hlýtt með fínum heitum potti á verönd og alles. Allt aðgengi að veiðistöðum var til fyrirmyndar þótt landið sé sumstaðar erfitt yfirferðar en það er ekki vandamál.
Fljótlega eftir komu var farið tíl veiða og þegar upp var staðið höfðu veiðst um 20 sjóbirtingar og staðbundnir urriðar sem verður að teljast velviðunandi svona í fyrstu ferð.
Veðrið hélst allgott og hlínaði talsvert í veðri og lægði svo mikið að sumir fóru í bátaútgerð sem gekk vel og urðu menn ekkert sjóveikir þótt algerir landkrabbar séu. Voru menn allsáttir við útkomuna í þessum túr og töluðu um að fara aftur á þetta svæði.
Sjá myndir.
Hattarinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.3.2008 | 14:31
Opið hús.
Sælir Víðförlafélagar.
Vil bara minna ykkur á að það er opið hús hjá SVFR. í kvöld þ. 7 mars
og verður húsið opnað kl. 20:00.
Að vanda er dagskráin full af fróðleik og skemmtilegu efni en einnig
vil ég vekja athygli ykkar á því að Laxafangarinn verður hinum megin
við barinn og er það alveg mögnuð sjón að sjá það gerast.
Bara þessvegna ættu menn að mæta á þennan fund.
Kveðja Hattarinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2008 | 15:57
Veiðitúrar sumarssins dagsetningar og þáttakendur.
Fyrsti veiðitúr sumarsinsins 2008 verður í Steinsmýravötnin dagana 17-19 apríl og eru eftirtaldir Víðförla félagar búnir að melda sig í þá ferð: Laxafangarinn, 10 pundarinn, Laxarinn, Ugginn, Flotarinn, Urriðabaninn, Sporðurinn og einn gestur væntanlegur Víðförlafélagi Krumminn. Ég verð að segja að þetta er asskoti vígalegur hópur sem fer í fyrsta skifti á þessar slóðir til veiða og vonandi verður þessi ferð farin aftur á næsta ári.
Næst er það Flekkan 16-18 júlí og í þá ferð eru búnir að melda sig: Hattarinn, 10 pundarinn, Laxfræðingurinn, Hængurinn, Krumminn sá arna og einn gestur Eggert. Vonandi lendum við í betra veiðiveðri en í fyrra þegar við lentum sólinni, hitanum °25, blíðunni og vatnsleysinu. Það verður ekki verra til veiða en þá en allt hitt var frábært.
Þá er það Hólsáin austurbakkinn 18 og 19 ágúst. Í þessa ferð fara: Hattarinn, 10 pundarinn, Laxarinn, Ugginn, Hrygnan, Krumminn og 2 gestir Eggert og Skafti. Þessi túr fékkst eftir mikið japl jamm og fuður því sótt var um allt aðra daga en því miður varð þetta lendingin og við því er ekkert að gera. Það verður nóg af fiski þarna á þessum tíma ef að líkum lætur og sjóbirtingurinn farinn að láta sjá sig og það sá stóri. Þarna er spurning um veiðihús en við fáum nanari upplýsingar síðar.
Þá er það rúsínan í pylsuendanum. Segi ekki meir. 20-22 sept. Í þessa ferð hafa meldað sig: Hængurinn, Hrygnan, Birtingurinn, Sporðurinn, Flotarinn, Laxfræðingurinn, Urriðabaninn, Laxarinn, 10 pundarinn, Hattarinn, Ugginn og Laxafangarinn. Þetta er sko vígalegur hópur og hananú. Það verður að segjast eins og er að þetta sumar lítur afskaplega vel út fyrir okkur í Víðförla og vonandi verður veiðin að sama skapi.
Bloggar | Breytt 25.2.2008 kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2008 | 15:09
Sælir félagar.
Þá eru fyrstu 3 veiðitúranir í sumar klárir og er ég búinn að senda þeim sem fara í viðkomandi veiðitúra allar dagsetningar og veiðár. Það verður að segjast alveg eins og er að veðrið þessa dagana hefur verið alveg hund leiðinlegt í alla staði snjór og skítur. Þegar svona stendur á með veðrið skulum við hugsa um björtu hliðarnar á þessum snjórudda og þær eru að því meiri snjóalög í fjöllum í vor því minni líkur á vatnsskorti í ánum í sumar eins og var t.d. síðastliðið sumar.
Ég set þetta svona fram því maður er náttúrulega farin að hugsa til vorssins og þetta styttist óðum og vonandi verður þetta sumar okkur Víðförlafélugum fengsælt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2008 | 14:23
Opið hús.
Sælir félagar.
Við erum búnir að fá úthlutað í Steinsmýrarvötn í apríl og Hólsána í ágúst en ég get ekki alveg fastneglt dagana ennþá en mun gera það um leið og málin skýrast fullu.
Það eru forföll í Flekkuna 16 - 18 júlí þannig að það er pláss fyrir 1 félaga til viðbótar í þá ferð þannig að þeir ykkar sem hafa áhuga látið mig vita sem fyrst.
Það er enn talsverður áhugi með inngöngu í Víðförla og nú þegar liggur ein umsókn fyrir og önnur væntanleg þannig að enn fjölgar í hópnum ef að líkum lætur enda ekki skrítið þar sem félagsskapurinn er góður.
Að lokum vil ég minna á opna húsið hjá Svfr. á morgun föstudag kl. 20:00.
Sjáumst.
Kveðja Hattarinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2008 | 23:33
Veiðisumarið 2008.
Sælir félagar.
Þá er Flekkan klár á sama tíma og vant er og við förum, 10 pundarinn, Hattarinn, Laxfræðingurinn,
Ugginn, Krumminn og Hrygnan. Þannig að þetta er svo til sami hópurinn og í fyrra.
Nú erum við að glíma við tvö veiðisvæiði hjá Svfr. sem hefur á undanförnum árum verið mjög auðvelt
að fá á sanngjörnu verði.
En nú er fyrirsjáanlegt það það kostar blóð svita og tár að halda sínu, við gerum það sem við
getum til þess að fá okkar tíma á kosnað sumra sem ekki eru í Svfr.
Svona er lífið.
Gangið í SVFR.
Kveðja Hattarinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2007 | 12:26
Áramótakveðja
Kæru félagar Veiðfélagssins Víðförla.
Ég óska ykkur öllum gleðilegs og fengsæls komandi árs með þakklæti fyrir samveruna á bökkum íslenskra veiðiáa og við önnur tækifæri á síðastliðnu ári. Megi hið komandi ár verða ykkur öllum og fjölskyldum ykkar til heilla og hamingju.
Með veiðikveðju,
Hattarinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2007 | 12:50
Veiði.
Sælir félagar.
Nú er undirbúningur fyrir sumarið 2008 í fullum gangi.
Við erum búnir að tryggja okkur veiðileyfi í ánni okkar fyrir vestan þann 16 - 18 júlí og er þá þegar búið að manna þá ferð.
Verið er að skoða aðra möguleika hjá formanninum og hefur hann m.a. kannað aðra á sem við veiddum nokkrum sinnum í líka fyrir vestan og sendi ég Víðförlafélögum póst þegar ég veit meira.
Þá er talsverður áhugi fyrir vorveiðinni sem var rædd á aðalfundinum og einnig á laxveiðnni fyrir austan.
Þá hefur urriðabaninn komið með hugmynd um ferð til Grænlands sem virðist vera mjög spennandi kostur fyrir okkur sem eru fársjúkir því þar er víst mikið meira en nóg af bleykju. Sjá nýjasta rit Svfr. Veiðmanninn en þar er grein um bleykjveiðar á Grænlandi.
Ég mun senda félagsmönnum í Víðförla fljótlega póst með nánari upplýsingum.
Kveðja Hattarinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2007 | 15:55
Aðalfundur Víðförla.
Aðalfundurinn var haldin 17 nóv. s.l. og sóttu hann alls 10 Víðförlafélagar.
Dagskrá fundarins var hefðbundin að vanda og kom fram hjá formanninum að alls voru farnir 4 Víðförlatúrar á þessu sumri og veiddust í þessum ferðum alls 76 fiskar (66 laxar, 7 urriðar og 3 bleykjur) og verður það að teljast velviðunandi miðað við veður fyrrihluta sumars.
Það kom einnig fram að þessi félagsskapur er Víðförull í veiði og fara víða þótt ekki séu það skráðar Víðförlaferðir.
Þá voru að vanda lögð drög að veiðiferðum næsta sumars og margt annað skrafað og rætt.
Formaður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2007 | 09:29
Aðalfundur
Aðalfundur Veiðifélagssins Víðförla verður haldin laugardaginn 17 nóvember n.k. að Þinghólsbraut 11 (hjá 10 pundaranum) og hefst stundvíslega kl. 17:00. Reiknað er með að fundarstörfum ljúki um
kl. 21:00.
Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum félagssins.
Allar veitingar á fundinum verða í boði Víðförla.
Vinsamlegast tilkynnið þáttöku í síðasta lagi á hádegi á föstudag vegna innkaupa.
Mætum allir.
Kveðja Hattarinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)